Íslenska
Ég hóf störf sem lektor í heilbrigðisverkfræði við tækni og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík í janúar 2006. Árið 2005 var ég nýdoktor hjá Jerry Siegel í UCLA; þar áður tók ég meistara og doktorspróf í taugavísindum hjá Mark Blumberg í University of Iowa í Bandaríkjunum. Og ég lauk baccalaureate gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands. Áður en akademískur ferill minn hófst stundaði ég aðallega sjómennsku frá Þorlákshöfn. Í náminu lagði ég áherslu á að rannsaka svefn og sérstaklega hvernig breytingar á taugakerfinu orsaka þær miklu breytingar á svefnmynstrum sem gerast eftir fæðingu. Svefn er áfram megin viðfangsefni rannsóknum minna. Sem stendur er ég að vinna að nýstárlegri tölfræðilegri greiningu á lengd svefnlota. Markmiðið er að þróa aðferðir til svefngreininga sem eru einfaldari en þær sem beitt er í dag og gerir samanburð milli tegunda auðveldari. Einnig vinn ég að rannsóknum þar sem starfrænni segulómun er beitt til þess að skilja hvernig frumur í miðlægri undirstúku bregðast við tilfinningaáreiti en þessar niðurstöður geta haft mikla þýðingu fyrir skilning okkar á drómasýki. Og að lokum þá vinn ég að þróun sebrafiskalíkans af svefni. En vonir standa til að hægt sé gera þær tilraunir sem ekki er hægt að framkvæma á fólki á fiskunum og yfirfæra rannsóknarniðurstöðurnar aftur á menn. Allt birt efni eftir mig má nálgast undir “Publications” á þessari síðu.